Hvað er Boxup

BoxUp býður upp á nýja lausn fyrir íslenskar netverslanir sem einfaldar rekstur með vöruhýsingu, pökkun, sendingum og tæknilausnum. Þannig geta verslanir einbeitt sér að vexti og markaðssetningu í stað daglegra verkefna.

1. nóvember 2025
5 mín lestur

Vöruhúsið hjá BoxUp býður upp á nýja lausn fyrir íslenskar netverslanir. Við stefnum á að fara í loftið 1. desember og erum spennt að kynna hvernig við getum hjálpað verslunum eins og þinni að einfalda daglegan rekstur.

Það sem við sjáum aftur og aftur hjá íslenskum netverslunum er að eigendur sinna öllu sjálfir. Þeir taka á móti vörum, skrá í birgðakerfi, pakka, svara fyrirspurnum og sinna sendingum. Ofan á allt þetta þarf líka að finna tíma til að auglýsa, byggja upp samband við viðskiptavini og efla sölu.

Hvernig getur BoxUp hjálpað?
Við viljum taka yfir þessi daglegu og tímafrek verkefni svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir mestu máli í rekstrinum þínum. Vöruhúsið okkar og þjónustan sér um:

  • Vörulager – geymum vörurnar fyrir þig í vöruhúsinu
  • Afgreiðslu pantana – pökkum og sendum út daglega
  • Heimsendingar – hraðari og skilvirkari afhending fyrir viðskiptavini þína
  • Tæknilausnir – hjálpum þér að nýta sömu verkfæri og stærstu netverslanir nota í dag

Við erum að færa tækni og þjónustu sem stærri aðilar eins og Temu og Wolt nýta sér yfir til íslenskra netverslana sem vilja stækka án þess að þurfa að stækka starfsliðið sitt.

Hljómar þetta kunnuglega?

  • Er geymslukostnaður eða skortur á pláss að hindra þig í að stækka vöruúrvalið?
  • Fer allur dagurinn í pökkun og afgreiðslu í stað þess að þú einbeitir þér að markaðssetningu?
  • Viltu bæta endursölu með betri afhendingarleiðum og þjónustu?
  • Finnst þér erfitt að finna tíma til að tengjast verslunum eða viðskiptavinum?

Ef svarið er já, þá gætum við haft lausn sem hentar þér vel. Vöruhúsið okkar er tilbúið.

Við viljum heyra frá netverslunum sem eru tilbúnar að taka næsta skref. Hvort sem þú ert að byrja eða hafir vaxandi rekstur, þá getur verið gríðarlegur léttir að fá fagfólk í lið með sér til að sinna þeim þáttum sem taka mestan tíma.

Við byrjum formlega í desember, en tökum nú þegar á móti áhugasömum samstarfsaðilum.
Ef þetta hljómar áhugavert, endilega hafðu samband.

Tags

HeimsendingÍslandMarkaðssetningNetverslanirTæknilausnirVöruhús

Upplýsingar

Hafa samband

hallo@boxup.is