BoxUp og Heimaró hefja samstarf

BoxUp og Heimaró hefja samstarf þar sem BoxUp sér um vöruhýsingu og pakkningar fyrir íslenska vefverslunina Heimaró sem var stofnuð vorið 2019.

1. nóvember 2025
5 mín lestur

Við hjá BoxUp erum stoltir að tilkynna nýtt samstarf með Heimaró.

HEIMARÓ er íslensk vefverslun sem var stofnuð vorið 2019 og býður uppá vörur sem eru að mestu hannaðar og/eða framleiddar af þeim hér á Íslandi.

Frá og með í dag sér BoxUp um vöruhýsingu og pakkningar fyrir Heimaró. Þegar þú pantar hjá Heimaró mun pakkinn þinn vera vandlega undirbúinn og tilbúinn til sendingar á sem skilvirkustan hátt.

Teymið hjá Heimaró getur nú einbeitt sér að því sem það gerir best og hannað og framleitt fallegan fatanað á meðan BoxUp tekur að sér að sjá um geymslu og undirbúning pakkninga.

"Samstarf okkar við Boxup hefur farið fram úr okkar væntingum en þeir sjá um alla innpökkun og sendingar fyrir okkur. Öll samskipti hafa verið persónuleg og ef eitthvað kemur upp eru þeir tilbúnir að finna lausnir með okkur. Við gætum ekki verið ánægðari með samstarfið og hlökkum til að vaxa með þeim!"

— Ásdís eigandi HEIMARÓ

Við hlökkum til að vera hluti af ferðalagi Heimaró og styðja þá í að veita viðskiptavinum sínum sem bestu þjónustu.

Velkomin í BoxUp fjölskylduna, Heimaró! 🧡📦

Tags

HeimsendingÍslandMarkaðssetningNetverslanirVöruhús

Upplýsingar

Hafa samband

hallo@boxup.is