Áður fyrr dugði að segja: „Pöntunin þín kemur innan 2–5 virkra daga.“ Viðskiptavinir voru bara ánægðir með að geta pantað eitthvað á netinu. En nú eru kröfurnar breyttar. Fólk vill hraða, skýrleika og valmöguleika.
Viðskiptavinir í dag eru orðnir vanir þjónustu frá risum eins og Wolt, Amazon og Temu. Þeir vilja fá pöntunina sína fljótt. Þeir vilja rekjanleika og vita nákvæmlega hvar sendingin er stödd. Þeir vilja velja á milli mismunandi afhendingarmátar, til dæmis heimsendingar eða afhendingarstaða sem hentar þeim.
Ef eina sendingarleiðin sem þú býður er „venjuleg póstsending“, þá getur það dregið úr sölu. Fólk frestar kaupum eða velur að versla annars staðar, jafnvel þótt varan þín sé betri. Ástæðan er sú að sendingin er hluti af heildar upplifun kaupandans. Ef hún er óskýr, hæg eða ótraust, þá endurspeglast það á vörumerkinu þínu.
Netverslanir sem bjóða hraðari og gegnsærri sendingar upplifun byggja upp traust. Þær fá fleiri endurkaup og betri umsagnir. Það getur líka lækkað þjónustukostnað því færri hafa áhyggjur eða senda fyrirspurnir.
Þetta þýðir ekki að þú þurfir að bjóða sama hraða og Amazon. En með réttum samstarfsaðila getur þú samt boðið afhendingu sem er einföld, skjót og rekjanleg. Það er allt sem flestir kaupendur þurfa.
Ef þú vilt standa undir væntingum nútíma neytenda, þá þarftu sendingar kerfi sem styður þig í því.Við hjá Boxup getum aðstoðað með það.
