Að byrja netverslun á Íslandi, er hugmyndin þín tilbúin?
Þú færð hugmynd af vöru eða vefverslun og kannski hefur þú verið að hugsa um hana í nokkrar vikur, jafnvel lengur. Varan er til. Fólkið sem þú vilt selja til er til. Þú veist að Shopify netverslun er leiðin. Svo kemur spurningin sem stöðvar svo marga: "Já en… hvað geri ég svo?"
Þetta blogg er til þín. Við förum yfir það sem við mælum með að þú hafir í huga þegar þú ert að fara úr hugmyndastigi yfir í raunverulega Shopify netverslun á Íslandi, og hvað þú getur gert til að ganga úr skugga um að þú eigir ekki að drukkna í pökkum og sendingum þegar verslunin fer að ganga.
Hugmyndin er í raun byrjunin
Það er eitthvað sérstakt við þá stund þegar þú færð hugmyndina. Þú sérð fyrir þér hvernig verslunin á að líta út, hvað þú ert að selja og hvernig fólk mun bregðast við. Þetta er það sem knýr fólk áfram.
Svo koma upp vandamálin. Vöruhýsing. Pökkun. Sendingar. Vöruskil. Þetta eru hlutir sem margir hugsa minnst um þegar þeir eru að skipuleggja Shopify netverslun sína, og það er einmitt þar sem margar verslanir rekast á vandann þegar þær byrja að vaxa.
Góðu fréttirnar? Þetta þarf ekki að vera vandinn þinn. 😊
Hvernig á að fara úr hugmynd yfir í verslun
Fyrsta skrefið er að koma versluninni þinni í gang. Shopify er hannað þannig að þú þarft ekki að vera tæknifróður til að setja hana upp. Þú velur þema, bætir við vörum, tengir greiðslumáta og þá ertu búinn. Við höfum skrifað heilt blogg um nákvæmlega þetta, hvernig á að opna Shopify netverslun á Íslandi þar sem við förum í gegnum hvert skref.
Það er þó eitt sem þú þarft að ákveða snemma: hvað gerir þú með vörurnar þínar?
Vöruhýsing, þrír möguleikar
1. Heima hjá þér
Flestir byrja svona. Þú geymir vörurnar í stofu, kjallara eða bílskúr. Það virkar vel þegar pantanir eru fáar. Þegar verslunin fer að ganga vel verður þetta fljótt þröngt og þreytandi.
2. Leigja geymslupláss
Þegar magn vex er þetta náttúrulegt næsta skref. Þú færð meira rými en þú þarft samt að sinna pökkun og sendingum sjálfur.
3. Úthýsa til sérfræðinga
Þetta er leiðin sem flestar netverslanir fara að lokum. Þú sendir vörurnar til einhvers sem sér um allt, vöruhýsingu, tínslu, pökkun og sendingar. Þú opnar Shopify, sérð pantanirnar koma inn og treystir því að þær séu afgreiddar. Engar kvöldvaktir í pakkaherberginu. 📦
BoxUp er þessi aðili á Íslandi. BoxUp er íslensk 3PL þjónusta, þ.e. Third Party Logistics, sem sérhæfir sig í vöruhýsingu, pökkun og sendingum fyrir Shopify netverslanir. Þjónustan hentar hvort sem þú ert að byrja með fyrstu pantanirnar eða ert þegar að reka virka verslun sem þarf að skala upp. Við tengjumst beint við Shopify verslunina þína og um leið og pöntun berst förum við í gang. Þú færð tilkynningu þegar pöntun er afgreidd og hefur alltaf yfirsýn yfir öllu. Þú getur lesið meira um okkur í þessu bloggi um hvað BoxUp er.
Sendingar, það sem viðskiptavinir þínir muna
Fólk man ekki alltaf hvað það keypti. Það man alltaf hvort þetta kom hratt og í góðu ástandi.
BoxUp býður upp á samdægursafhendingar á höfuðborgarsvæðinu og tengist einnig þriðja aðila eins og Dropp og Póstinum fyrir sendingar víðar um land. Þannig getur þú boðið viðskiptavinum þínum þær sendingaleiðir sem þeir vilja án þess að þurfa að skipuleggja þetta sjálfur.
Ef þú vilt lesa meira um hvernig þú getur sparað tíma með því að úthýsa þessum hluta skaltu kíkja á þetta blogg um frítíma og netverslun.
Vöruskil, hlutinn sem enginn vill hugsa um
Við skiljum það. Vöruskil eru ekki skemmtilegt efni en þau eru hluti af rekstrinum og það er betra að vera tilbúinn.
Góð vöruskila stefna eykur traust viðskiptavina. Fólk er tilbúnara að kaupa þegar það veit að það getur skilað auðveldlega ef eitthvað fer úrskeiðis. BoxUp sér um móttöku vöruskila, yfirfarar vörurnar og sér til þess að þær séu frágengnar til endursölu þar sem við á.
Markaðssetning, þegar verslunin er tilbúin
Þegar þú hefur fundið lausn á vöruhýsingu og sendingum er kominn tími til að fá fólk inn á verslunina þína. Shopify er með innbyggð verkfæri til að hjálpa þér með þetta en það eru nokkrar leiðir sem virka sérstaklega vel.
SEO er ein mikilvægasta leiðin til að fá viðskiptavini til lengri tíma. Þegar þú ert vel settur í Google þarft þú ekki að greiða fyrir hvern gest. Við höfum skrifað um SEO fyrir Shopify netverslanir og líka um markaðssetningu Shopify netverslana á Íslandi ef þú vilt fara dýpra í þetta.
Frá hugmynd yfir í verslun sem virkar
Að gera hugmynd að Shopify netverslun að raunveruleikga er ein skemmtilegasta ferðin sem frumkvöðull getur farið. Það eru áskoranir á leiðinni, það er eðlilegt. Þú þarft ekki að takast á við allt einn.
Þú ert með hugmyndina og viljann. Við hjá BoxUp erum hér til að sjá um restina. 🙌
Langar þig að vita hvað þjónustan kostar fyrir þína verslun? Notaðu reiknivélina okkar til að fá áætlun, eða hafðu samband og við setjum saman tilboð sérstaklega fyrir þig. Við hlökkum til að heyra frá þér! 😊


