Hefur þú íhugað að opna Shopify netverslun en haldið að það væri of erfitt eða flókið? Kannski ert þú þegar að selja á Facebook og Instagram en vilt færa þig yfir í eitthvað faglegra. Eða kannski hefur þú bara hugmynd að vöru sem þú trúir á og vilt koma á markað. Hvað sem það er þá er Shopify ein besta leiðin til að koma þessari hugmynd yfir í raunverulega netverslun á Íslandi. Í þessu bloggi förum við í gegnum allt sem þú þarft að vita til að koma versluninni þinni af stað.
Af hverju Shopify?
Það eru margar leiðir til að búa til netverslun en Shopify er sú sem virðist vera algengasta leiðin sem byrjendur nota. Þú þarft ekki að vera tæknifróður, þú þarft ekki að ráða forritara og þú getur komið versluninni þinni af stað á nokkrum dögum. Shopify sér um allt sem snýr að tækni hlutanum á meðan þú getur einbeitt þér að því sem skiptir máli, vörurnar þínar og viðskiptavini þína. Á Íslandi er Shopify orðið mjög vinsælt meðal netverslana og það er ástæða fyrir því. Kerfið tengist auðveldlega íslenskum greiðslulausnum, það er hægt að setja það upp á íslensku og þú þarft ekki að eyða tíma og orku í að byggja netverslun upp frá grunni.
Þú þarft að byrja á léni
Fyrsta skrefið er að tryggja þér lén. Lénið er vefslóðin þín, til dæmis www.boxup.is. Þú getur keypt lén beint í gegnum Shopify eða hjá íslenskum lénaveitanda. Ef þú ert að selja á Íslandi er .is lén alltaf betra því það gefur íslenskum viðskiptavinum traust og hjálpar þér líka í íslenskri leit. Þegar þú hefur fundið lénið þitt er kominn tími til að setja upp Shopify reikninginn þinn. Shopify býður upp á ókeypis prufu tímabil þannig að þú getur skoðað kerfið áður en þú skuldbindur þig til að greiða.
Útlit netverslunarinnar
Shopify er með mikið úrval af þemum, bæði ókeypis og greidd. Þemað ræður því hvernig verslunin þín lítur út og hvernig viðskiptavinir þínir upplifa hana. Það eru til þemur sem henta betur fyrir tísku vörur, önnur fyrir tæknivörur og önnur fyrir handgerðar vörur. Það mikilvægasta er að þemað þitt sé hreint, skýrt og virki vel í síma. Flestir Íslendingar versla í síma þannig að ef verslunin þín lítur ekki vel út í síma muntu missa af mörgum viðskiptavinum.
Vörurnar þínar
Þegar þú hefur valið þema er kominn tími til að bæta vörunum þínum inn í verslunina. Í Shopify er þetta einfalt þar sem þú bætir við mynd, lýsingu, verði og birgðastöðu. Myndir skipta gríðarlegu máli því góðar myndir selja vörur og slæmar myndir geta hindrað kaup. Þú þarft ekki dýran ljósmyndara, það mikilvægasta er að ljósið þarf að vera gott og bakgrunnurinn þarf að vera hreinn. Vörulýsingarnar þurfa að vera skýrar og svara þeim spurningum sem viðskiptavinurinn er líklega að spyrja sig. Það er líka mikilvægt að hugsa um lykilorð sem neytendur geta leitað eftir frá upphafi og setja lykilorð inn í vörulýsingarnar og titlana þannig að fólk geti fundið vörurnar þínar í gegnum Google.
Greiðslumátar
Shopify styður margar greiðslulausnir en ef þú ert að selja á Íslandi þarftu að tryggja þér að þú sért með íslenska greiðslumáta. Flestir Íslendingar greiða með kortum og því þarftu að tengjast við greiðslugátt sem virkar hér á landi. Það er mikilvægt að velja greiðslugátt sem er örugg, auðveld í notkun og hentar stærð verslunarinnar þinnar. Sumar greiðslugáttir eru með fasta mánaðarlega gjaldtöku á meðan aðrar taka hlutfall af hverri sölu þannig að það borgar sig að bera saman möguleikana áður en þú tekur ákvörðun. Það eru til nokkrar lausnir sem henta íslenskum Shopify verslunum og mæli ég með að skoða þær vel áður en þú opnar verslunina þína. Nokkur dæmi um greiðslulausnir eru: Rapyd, Teya, Verifone, Straumur.
Sendingar og vöruhýsing
Þetta er oft sá hluti sem fólk hugsar minnst um þegar það er að setja upp verslunina sína en ef þú ert ekki með gott plan getur þetta orðið vandamál þegar verslunin þín byrjar að vaxa. Þegar þú ert að byrja er eðlilegt að sjá um pakkningar og sendingar á eigin spýtur en eftir því sem verslunin þín vex mun þessi hluti taka meira og meira af tímanum þínum. Það er líka mikilvægt að hugsa um hvernig þú geymir vörurnar þínar. Margir byrja með vörurnar heima en þegar magn panta eykst þarf að finna betri lausn. Margir rekstraraðilar Shopify verslana komast að þeirri niðurstöðu að það sé skynsamlegt að úthýsa vöruhýsingu og pökkun til sérfræðinga þannig að þeir geti einbeitt sér að því sem þeir gera best. BoxUp er íslensk 3PL þjónusta sem sérhæfir sig í vöruhýsingu, innpökkun og vöruafhendingum fyrir Shopify verslanir á Íslandi og tengist beint við Shopify verslunina þína þannig að pantanir fara sjálfkrafa í afgreiðslu. Til að lesa meira um hvernig BoxUp getur hjálpað þér skaltu skoða þetta blogg:
Markaðssetning
Þegar verslunin þín er tilbúin er kominn tími til að fá fólk inn á hana. Shopify er með innbyggð verkfæri til að hjálpa þér með markaðssetningu en það eru nokkrar leiðir sem virka sérstaklega vel fyrir íslenskar verslanir. Samfélagsmiðlar eru nauðsynlegir þar sem Instagram og Facebook eru sterkustu rásirnar fyrir flestar íslenskar netverslanir og það er mikilvægt að vera reglulega virkur á þeim. Greiddar auglýsingar á Facebook geta einnig verið mjög áhrifaríkar ef þú vilt ná til fleiri viðskiptavina fljótt þar sem þú getur beint auglýsingunni nákvæmlega að þeim hóp sem þú vilt ná til. Blogg á vefsíðunni þinni er líka mjög gott fyrir SEO því þegar þú skrifar gagnlegt efni sem tengist vörunum þínum mun Google byrja að sýna vefsíðuna þína ofar í leitarniðurstöðum og það þýðir fleiri gestir og meiri sala. Það er líka gott að safna tölvupóstum frá viðskiptavinum frá upphafi þannig að þú getir sent þeim fréttabréf og tilkynningar um nýjar vörur og tilboð.
Þú ert tilbúin/n
Að opna Shopify netverslun á Íslandi er ekki eins flókið og margir halda. Með réttu þema, góðar myndir, skýrar vörulýsingar og gott plan fyrir sendingar ert þú vel á veg kominn. Það mikilvægasta er að byrja og læra í leiðinni. Verslunin þín þarf ekki að vera fullkomin frá upphafi, hún þarf bara að vera til. Þegar kemur að þeim hluta sem snýr að vöruhýsingu og pökkun þarftu ekki að gera það ein/n. Leyfðu BoxUp að sjá um það fyrir þig. Hafðu samband við BoxUp og fáðu ókeypis verðtilboð í dag.



