Markaðssetning fyrir Shopify netverslanir, hvernig færðu fleiri viðskiptavini?
Þegar verslunin þín er tilbúin og vörurnar eru komnar inn er næsta skrefið að fá fólk til að finna hana. Þetta er oft sá hluti sem eigendur netverslana gleyma að hugsa um fyrirfram og getur það orðið dýrt seinna meir. Góð markaðssetning þarf ekki að vera dýr en hún þarf að vera skipulögð. Í þessu bloggi förum við yfir það sem við mælum með að hafa í huga þegar kemur að markaðssetningu Shopify netverslunar á Íslandi, hvort sem það er SEO, samfélagsmiðlar, fréttabréf eða auglýsingar.
Hvað er SEO og af hverju skiptir það máli?
SEO stendur fyrir Search Engine Optimization, eða leitarvélabestun á íslensku. Í einföldum orðum þýðir þetta að gera vefsíðuna þína sýnilegri í Google þannig að fólk finni hana þegar það leitar að vörum eða þjónustu sem þú býður upp á.
Hugsum okkur að þú sért að selja handgerð kerti á Íslandi. Þegar einhver slær inn "handgerð kerti Ísland" í Google þá ræður SEO því hvort verslunin þín birtist efst á síðunni eða hvort hún gleymist á síðu tvö eða þrjú þar sem fáir skoða. Rannsóknir sýna að yfir 70% af öllum smellum fara á fyrstu þrjár niðurstöður í Google þannig að það skiptir gríðarlegu máli hvar þú ert staðsettur.
Shopify er með innbyggð SEO verkfæri sem gera þér kleift að bæta titla, lýsingar og lykilorð við hverja vöru og hverja síðu. Það er mikilvægt að nýta þetta vel frá upphafi.
Hvernig bætirðu SEO í Shopify verslun þinni?
Lykilorð
Það eru nokkur atriði sem skipta mestu máli þegar kemur að SEO í Shopify verslun. Fyrst og fremst þurfa lykilorðin þín að vera rétt. Lykilorð eru þær orðasamsetningar sem fólk slær inn í Google þegar það er að leita. Þú þarft að hugsa um hvaða orð viðskiptavinir þínir eru líklega að nota og nota þau orð í titlum, vörulýsingum og bloggfærslum.
Blogg og efnisframleiðsla
Blogg á vefsíðunni þinni er ein besta leiðin til að bæta SEO. Þegar þú skrifar gagnlegt efni sem tengist vörunum þínum og markhópnum þínum byrjar Google smám saman að sjá vefsíðuna þína sem trausta og gagnlegan heimild og raðar henni hærra í leitarniðurstöðum. Þetta tekur tíma en þetta er ein af öruggustu og ódýrustu leiðunum til að fá fleiri gesti inn á síðuna þína til lengri tíma litið.
Hraði og farsímar
Það er líka mikilvægt að vefurinn þinn hlaðist hratt og virki vel í síma. Google raðar vefsíðum sem hlaðast hratt ofar en þær sem eru hægar og samkvæmt Statista koma um þrjú af fjórum heimsóknum á netverslanir í Norðurlöndunum frá símum þannig að þetta er eitthvað sem má ekki gleyma.
Samfélagsmiðlar — nauðsynleg hluti af markaðssetningu
Instagram og Facebook eru sterkustu rásirnar fyrir flestar íslenskar netverslanir. Þegar þú ert virkur á samfélagsmiðlum og deilir myndum, frásögnum og uppfærslum um vörurnar þínar þá byggir þú upp traust og tengsl við hugsanlega viðskiptavini.
Það er mikilvægt að vera reglulega virkur á samfélagsmiðlum frekar en að birta eitthvað einu sinni á viku og hverfa svo. Samræmi er lykilinn. Þú þarft ekki að birta á hverjum degi en þú ættir að setja þér markmið og fylgja því.
Myndir skipta gríðarlegu máli á samfélagsmiðlum. Gæðamyndir af vörunum þínum laða að sér athygli og gefa til kynna að þú sért faglegur aðili sem er þess virði að treysta. Það er líka gott að nota Stories og Reels þar sem þessi form af efni ná til fleiri fólks en venjulegar myndir.
Greiddar auglýsingar á Facebook og Instagram
Greiddar auglýsingar á Facebook og Instagram gefa þér möguleika á að ná til nákvæms markhóps á stuttum tíma. Þú getur stillt auglýsingarnar þannig að þær birtast einungis þeim sem passa við ákveðin skilyrði eins og aldur, búsetu, áhugamál eða hegðun á netinu.
Þú þarft ekki mikin pening til að byrja. Margar íslenskar netverslanir byrja með lítið sem ekkert fjármagn í auglýsingar og læra hvernig á að nota verkfærin áður en þær fara að fjárfesta meira. Það mikilvægasta er að prófa sig áfram og skoða hvað virkar best fyrir þína verslun.
Það er líka gott að nota auglýsingar til að kynna ákveðnar vörur, tilboð eða atburði frekar en að auglýsa verslunina þína í heild. Þannig er auglýsingin skýrari og áhrifameiri. Ertu nýr að Shopify? Lestu bloggið okkar um hvernig á að setja upp Shopify netverslun á Íslandi.
Fréttabréf — leið til að halda í viðskiptavinina þína
Margir gleyma að byrja að safna tölvupóstum frá viðskiptavinum frá upphafi og það eru stór mistök. Tölvupóstur er ein af mikilvægustu markaðsleiðunum sem til eru þar sem þú ert að ná beint til fólks sem hefur þegar sýnt áhuga á vörunum þínum. Ólíkt samfélagsmiðlum þar sem algóritminn ræður því hverjir sjá efnið þitt þá fer fréttabréfið beint í pósthólf viðskiptavinarins.
Þegar þú hefur safnað lista af tölvupóstföngum getur þú sent fréttabréf með nýjum vörum, tilboðum og fréttum frá versluninni þinni. Shopify gerir þér kleift að setja upp sjálfvirk fréttabréf þannig að þú þarft ekki að senda hvert bréf handvirkt. Það eru til verkfæri eins og Klaviyo og Mailchimp sem tengjast beint við Shopify og gera þetta mjög auðvelt.
Gott fréttabréf á ekki alltaf að vera að selja eitthvað. Það má líka vera að deila gagnlegu efni, kynna manneskjuna á bak við verslunina eða segja frá nýjungum. Þetta byggir upp traust og tengsl við viðskiptavini þína þannig að þegar þú ert að selja eitthvað eru þeir tilbúnir til að kaupa.
Það er líka gott að bjóða viðskiptavinum eitthvað í skiptum fyrir tölvupóstinn þeirra, til dæmis afslátt af fyrstu pöntun eða ókeypis sendingu. Þetta eykur líkurnar á að fólk skrái sig og gefur þér tækifæri til að kynna verslunina þína strax.
Markaðssetning krefst þolinmæði
Það er mikilvægt að hafa í huga að markaðssetning tekur tíma. SEO gefur ekki niðurstöður yfir nótt og samfélagsmiðlar þurfa tíma til að byggja upp fylgi. En því meiri tíma sem þú eyðir í markaðssetningu því meira mun það borga sig. Verslunin þín verður sýnilegri, traust viðskiptavina vex og sala eykst smám saman.
Byrjaðu á einum eða tveimur þáttum í einu frekar en að reyna að gera allt á sama tíma. Ef þú ert að byrja mælum við með að einbeita þér fyrst að SEO og samfélagsmiðlum á sama tíma þar sem SEO byggir upp langtíma sýnileika á meðan samfélagsmiðlar gefa þér beinan aðgang að hugsanlegum viðskiptavinum strax. Þegar þú hefur náð tökum á þessum tveimur getur þú bætt við fréttabréfi og greiddum auglýsingum.
Þegar þú ert tilbúinn að fjárfesta í greiddum auglýsingum þá er gott að byrja smátt og prófa mismunandi auglýsingar til að sjá hvað virkar best fyrir þína verslun áður en þú ferð að eyða meira. Markaðssetning er lærdómsferli og það sem virkar fyrir eina verslun virkar ekki endilega eins vel fyrir aðra.
Þegar þú hefur náð tökum á einum hluta getur þú bætt við öðrum og þannig byggt upp heildstæða markaðsstefnu fyrir Shopify verslunina þína. Hafðu samband við BoxUp og fáðu ókeypis verðtilboð í dag.


