Hvað er SEO fyrir netverslanir?
SEO stendur fyrir Search Engine Optimization, eða leitarvélabestun á íslensku. Í stuttu máli þýðir þetta að hjálpa Google að skilja hvað vefsíðan þín er að bjóða upp á þannig að hún birtist hærra í leitarniðurstöðum þegar fólk leitar að vörum eins og þínum.
Þegar einhver slær inn "handgerðar vörur á Íslandi" í Google þá ákveður Google á millisekúndu hvaða vefsíður eru best til þess fallnar að svara þeirri leit. Ef þú hefur unnið SEO vinnuna þína rétt þá birtist verslunin þín ofarlega og fólk smellir á hana. Það besta við SEO er að þegar það byrjar að virka þá skilar það árangri sjálfkrafa án þess að þú þurfir að greiða fyrir hverja smellingu eins og með greiddar auglýsingar. Þetta er langtímafjárfesting sem skilar sér aftur og aftur. Ef þú ert að byrja og hefur ekki enn opnað verslun þá er gott að lesa hvernig á að opna Shopify netverslun á Íslandi eða ertu með hugmynd að Shopify netverslun?
Hvernig bætir þú leitarvélabestun í Shopify verslun þinni?
Vertu viss um að Google finni vefsíðuna þína
Áður en þú getur rankast þarft þú að tryggja að Google viti af því að vefsíðan þín er til. Þetta gerir þú með því að setja upp Google Search Console og senda inn XML sitemap vefsíðunnar þinnar. Þetta er eitt af fyrstu skrefunum sem þú ættir að taka og Shopify gerir þetta auðveldara en margir halda þar sem kerfið sér sjálfkrafa um sitemap fyrir þig.
Keyword research — byrjaðu hér
Keyword research, eða lykilorðarannsókn, er grunnurinn að öllu. Ef þú veist ekki hvaða orð fólk er að slá inn í Google þá er erfitt að skrifa blogg sem kemur upp í leitinni. Keyword research þýðir að finna þau orð og orðasambönd sem markhópurinn þinn notar þegar hann leitar að vörum eins og þínum.
Lykilorð koma í mismunandi gerðum og það skiptir máli að skilja muninn á þeim. Short-tail lykilorð eru stutt og almenn, oft bara eitt eða tvö orð eins og „SEO" eða „Shopify". Gríðarlega margir leita að þessum orðum og því er samkeppnin jafn mikil. Mid-tail lykilorð eru aðeins lengri og sértækari lykilorð, til dæmis „SEO fyrir Shopify". Long-tail lykilorð eru lengst og sértækust og fáir leita að þessum orðum en þeir sem leita af þeim eru oft tilbúnir til að kaupa, til dæmis „SEO fyrir Shopify verslun".
Það eru til ókeypis verkfæri eins og Google Keyword Planner sem hjálpa þér að finna lykilorð og sjá hversu oft fólk leitar að þeim. Ef þú vilt fara dýpra þá eru greidd verkfæri eins og Ubersuggest og Semrush með enn frekari möguleika.
Eitt sem þarf að passa sig sérstaklega á er „keyword stuffing" sem þýðir að troða lykilorðunum inn í textann of oft þannig að hann hljómar óeðlilega. Google þekkir þetta og getur refsað vefsíðum fyrir það með því að ranka þær lægra. Lykilorðin eiga að koma fram á náttúrulegan hátt í textanum og ef þú ert ekki viss þá er góð regla að spyrja þig hvort textinn hljómi eðlilega þegar hann er lesinn upphátt.
On-page SEO — stilltu hverja síðu rétt
On-page SEO snýst um að útskýra vel fyrir Google hvað hver síða á vefsíðunni þinni fjallar um. Titillinn á hverri síðu, H1, á að innihalda aðal lykilorðið þitt og helst á það að koma fram snemma í titlinum. Undirkaflar eins og H2 og H3 eiga að innihalda tengd lykilorð. Meta lýsingin er textinn sem birtist undir titlinum í Google og hún á að vera 160 stafir eða styttri. Skrifaðu hana þannig að hún veki áhuga en lýsi líka nákvæmlega hvað er á síðunni. URL slóðin á líka að vera stutt og innihalda lykilorðið, til dæmis https://boxup.is/blog/hugmynd-af-shopify-netverslun/ í staðinn fyrir boxup.is/blog/page123.
Það er líka mikilvægt að gleyma ekki alt texta á myndum. Google getur ekki séð myndir en getur lesið alt textann sem þú setur með þeim. Þegar þú setur mynd af vöru í Shopify skaltu alltaf bæta við stuttri lýsingu á myndinni, til dæmis "handgerð kerti með vanillulykt" í stað þess að láta reitinn vera tóman.
Mobile-friendly útlit
Flestir Íslendingar versla í síma og Google raðar vefsíðum sem virka vel í síma hærra en þær sem gera það ekki. Shopify þemur eru yfirleitt vel stillt fyrir farsíma en það er alltaf gott að athuga þetta sérstaklega. Þú getur notað Google Mobile-Friendly Test til að athuga hvort verslunin þín hlaðist hraðlega og líti vel út í síma.
Internal og external links — tengslakerfið þitt
Tenglar skipta gríðarlegu máli í SEO og eru oft þátturinn sem gleymist. Internal links eru tenglar sem tengja saman síður innan sömu vefsíðu þinnar. Þegar þú skrifar blogg og tengir það við vörusíður eða aðrar blogggreinar þínar þá hjálpar þetta Google að skilja uppbyggingu vefsíðunnar og dreifir svokölluðu "link authority" á milli síðna. Það er líka mikilvægt að athuga reglulega hvort einhverjir tenglar séu brotnaðir þar sem Google lítur illa á vefsíður með brotna tengla. Þú getur notað Google Search Console til að finna brotna tengla. Ef þú vilt fara dýpra í markaðssetningu Shopify netverslana þá er gott að lesa þetta.
External links, eða backlinks, eru tenglar frá öðrum vefsíðum á þína vefsíðu. Google lítur á þessa tengla sem mælikvarða á trúverðugleika þinnar vefsíðu. Backlinks frá traustum íslenskum vefsíðum, fjölmiðlum eða bloggum geta haft gríðarleg áhrif á hvar þú raðast í Google. Þú getur byggt upp backlinks með því að skrifa gæðaefni sem aðrir vilja vísa á, vera í samstarfi við aðrar íslenskar verslanir eða fá greinar birtar á öðrum vefsíðum.
Afhverju góð blogg skipta máli
Blogg er ein besta leiðin til að bæta SEO á vefsíðunni þinni til lengri tíma litið og ástæðurnar eru fleiri en margir halda. Blogg gefur þér tækifæri til að nota lykilorð á náttúrulegan hátt og svara þeim spurningum sem markhópurinn þinn er að spyrja Google. Reglulegt blogg sýnir Google að vefsíðan þín er virk og uppfærð og gott blogg gefur öðrum vefsíðum ástæðu til að tengja á þig og eykur þannig backlinks inná síðuna þína. Fyrstu fimm niðurstöður í Google fá um 70% allra smella þannig að það borgar sig að gera allt sem hægt er til að komast þangað.
En til að blogg skili sem bestum SEO árangri þarf að stilla það rétt. Hér eru þeir þættir sem skipta mestu máli.
Titillinn á blogginu, H1, á alltaf að innihalda aðal lykilorðið þitt þar sem leitarvélar líta fyrst á H1 til að skilja um hvað bloggið fjallar. Lykilorðið á líka að koma fram snemma í textanum, helst í fyrstu 100 til 200 orðunum, þar sem Google lítur sérstaklega á upphaf textans. Skipulagðu bloggið með H2 og H3 fyrirsögnum í gegnum textann því þetta hjálpar bæði lesendum og leitarvélum að skilja uppbygginguna.
Lengd skiptir líka máli. Blogg sem eru að minnsta kosti 800 orð rankast almennt betur en styttri greinar og bestu blogg eru oft á bilinu 1200 til 2000 orð.
Bættu við 4 til 6 internal links í hvert blogg sem vísa á aðrar síður á vefsíðunni þinni þar sem þetta segir Google að vefsíðan sé vel tengd saman og eykur authority hennar. Bættu líka við external links á traustar vefsíður utan boxup.is þar sem þetta eykur trúverðugleika bloggisins í augum Google. Meta lýsingin á blogginu á að vera 150 til 160 stafir og lýsa nákvæmlega hvað bloggið fjallar um þar sem þetta er textinn sem birtist í Google leitarniðurstöðum. Að lokum skaltu alltaf bæta við alt texta á myndunum þínum þar sem Google getur ekki séð myndir og alt textinn segir leitarvélinni hvað er á myndinni.
Ef þú vilt vita meira um hvað BoxUp er og hvernig við getum hjálpað þér þá getur þú lesið hér.


