BoxUp fær starfsleyfi til að hýsa fæðubótaefni og vítamín 💊
Við hjá BoxUp vorum að fá starfsleyfi til að geyma og meðhöndla fæðubótaefni og vítamín í vöruhúsi okkar 🎉
Þetta er stór tíðindi fyrir okkur. Nú getum við tekið við öllum þeim íslenskum netverslunum sem selja heilsuvörur í gegnum Shopify. Starfsleyfið þýðir að þú getur treyst okkur fyrir vöruhýsingu á þessum vörum. Allt er gert eins og það á að vera, bæði lagalega og faglega.
Við höfum oft fengið þessa spurningu áður frá eigendum netverslanna hvort við getum geymt vítamín hjá okkur? Hvað með próteinduft eða omega-3 kapsúlur? Svarið er núna já, það getum við heldur betur 💪
Hvað þýðir þetta starfsleyfi í raun?
Það er ekki hægt að geyma fæðubótaefni og vítamín hvar sem er. Íslensk lög og reglugerðir kveða á um að vöruhús sem meðhöndlar slíkar vörur þurfi að uppfylla sérstakar kröfur. Kröfur um geymsluaðstæður, hreinlæti, eftirlit, skráningu og rakningu á vörum.
Við hjá BoxUp höfum uppfyllt þessar kröfur og fengið leyfið. Það þýðir í praktík:
- Vörurnar þínar eru geymdar í samræmi við gildandi reglur.
- Meðhöndlun og skráning fer eftir samþykktu verklagi.
- Rakning vegna t.d. innkallana einfaldast til muna.
- Gögn um lotu númer og önnur auðkenni er hægt að para við pantanir í Shopify.
Þetta er sérstaklega sniðugt ef þú ert að reka verslun sem selur heilsuvörur og þarft að vita að allt fari rétt fram, frá geymslu í vöruhúsi þangað til að viðskiptavinurinn fær vöruna afhenda.
Hvers vegna skiptir þetta máli fyrir Shopify seljendur?
Við höfum tekið eftir því að fleiri og fleiri íslenskar Shopify netverslanir eru að fara út í heilsuvörur. Vítamín, steinefni, prótein og fæðubótaefni eru að verða stór hluti af mörgum verslunum. Heilsuvörumarkaðurinn er að springa út. Samkvæmt Grand View Research nam markaðurinn yfir 209 milljörðum dala árið 2025 og er spáð að hann muni vaxa um 8,1% á ári fram til 2033.
Þú getur ekki bara geymt próteinduft í skápnum inn í stofu. Þessar vörur þurfa að vera skráðar rétt, geymdar á réttum stað með góðu hreinlæti og faglega meðhöndlun, ásamt því að þú sért viss um að allt sé í lagi.
Þegar pantanir fara að berast hraðar verður pökkun og sending stór hluti af daglegum rekstri. Með því að koma í samstarf við okkur getur þú úthýst þessum hluta. Við hjá BoxUp sjáum um vöruhýsinguna, pökkun og sendingar meðan þú einbeitir þér að sölu og markaðssetningu 🚀
Ert þú enn að velta því fyrir þér hvort þú eigir að stofna Shopify netverslun fyrir heilsuvörur? Þá er þetta blogg fyrir þig: Ertu með hugmynd að Shopify netverslun?
Hvaða vörur falla undir starfsleyfið?
Við getum nú meðhöndlað allar þær heilsuvörur, vítamín og fæðubótaefni sem flokkast sem þurrvara og þarf ekki sérstakt eftirlit annað en að vera geymt við stofuhita á þurrum stað.
Vítamín og steinefni 💊 C-vítamín, D-vítamín, magnesíum, sink og fleiri. Þetta eru nokkrar af vinsælustu vörum í íslenskum heilsuvöruverslunum.
Fæðubótaefni 🐟 Omega-3, probiotic kapsúlur, collagen og aðrar viðbætur sem flokkast sem þurrvörur.
Íþróttanæring 🏋️ Próteinduft, BCAA og önnur fæðubótaefni fyrir þá sem eru að selja vörur inn á íþróttamarkaðinn.
Ert þú ekki viss hvort varan þín fellur undir þetta? Sendu okkur línu á hallo@boxup.is og við skoðum þetta saman 😊
Hvernig virkar vöruhýsingin hjá BoxUp?
Þetta er miklu einfaldara en það hljómar! Þú sendir okkur vörunar, eða við sækjum þær til þín. Setur upp Appið okkar á Shopify aðgagnum þínum.
Um leið og allt er klárt og pantanir byrja að streyma til okkar, þá tökum við þær til og sendum strax út til þinna viðskiptavina.
Við einfaldlega geymum, tínum, pökkum og sendum, hvort sem það er samdægurs á höfuðborgarsvæðinu, í gegnum Dropp eða með Póstinum.
Þú getur svo fylgst með öllu í rauntíma í gegnum Shopify appið eða í gegnum kerfið okkar á netinu. Hver staðan er á pöntunum, hvar vörurnar eru geymdar, hversu mikið er til, og margt margt fleira.
Vilt þú fá hugmynd um hvað þetta kostar? Þú getur reiknað áætlaðan kostnað hér.
Við höfum líka skrifað meira um hvernig þetta virkar í raun og veru: Hvað er BoxUp
Tíminn er dýrmætur, sérstaklega þegar þú ert að vaxa ⏰
Þetta heyrum við frá mörgum viðskiptavinum okkar. Þegar netverslunin fer að vaxa þá fer meiri og meiri tími í að pakka og senda. Kvöldin fara í að fylla í kassa og fara í sendingar til Dropp eða Póstsins. Þetta var ekki planið, var það?
Þegar þú úthýsir vöruhýsingunni til okkar færðu þennan tíma til baka. Við höfum skrifað um þetta nánar: Netverslunin þín á ekki að stela frítímanum þínum
Þegar þú ert að hugsa um langtíma vöxt er gott að hafa markaðssetninguna í huga líka: Markaðssetning Shopify netverslana
Hvað segir löggjöfin um geymslu fæðubótaefna?
Fæðubótaefni og vítamín falla undir reglugerð um fæðubætur nr. 668/2019 á Íslandi, sem byggir á tilskipun Evrópusambandsins. Matvælastofnun hefur eftirlit með þessum vörum hér á landi, en Heilbrigðiseftirlit hvers sveitafélags sér um eftirlit með t.d. hýsingaraðilum.
Það þýðir að kröfur eru gerðar til þeirra sem selja þessar vörur og til þeirra sem sjá um geymslu og meðhöndlun þeirra. Við hjá BoxUp höfum uppfyllt þessar kröfur og fengið starfsleyfið sem þarf.
BoxUp er með starfsleyfi frá HEF (Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness).
Heimasíða: https://www.heilbrigdiseftirlit.is/ Email: hef@heilbrigdiseftirlit.is Sími: 550 5400
Við mælum með að þú kynnt þér reglurnar ef þú ert að selja fæðubótaefni. Matvælastofnun er góður staður til að byrja og það heilbrigðiseftirlit sem er í þínu sveitarfélagi.
Næstu skref 👋
Ert þú að selja heilsuvörur eða að hugsa um að byrja? Við hjá BoxUp erum tilbúin og getum hjálpað þér að koma þessu í gang 😉
Sendu okkur línu á hallo@boxup.is við svörum fljótt 😊
Vel gert að hafa lesið þig í gegnum þetta, er ekki kominn tími til að byrja? Hafðu endilega samband og við tökum þetta á flug með þér 🚀


